The key points are temporarily unavailable. You can still read the full Story below.
Main Points
Ásdís Karen Halldórsdóttir átti stóran þátt í 8-2 sigri AIK á Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Ásdís skoraði þrennu og lagði upp tvö mörk í leiknum. AIK lenti tveimur mörkum undir snemma leiks, en Ásdís hóf endurkomu liðsins með fyrsta marki þess. Fyrir lok fyrri hálfleiks hafði AIK snúið stöðunni sér í vil og leiddi 4-2. Í seinni hálfleik bætti Ásdís við öðru marki sínu áður en Ida Björnberg skoraði sjötta mark liðsins. Ásdís lagði síðan upp sjöunda markið og fullkomnaði þrennu sína á 81. mínútu. Með sigrinum hefur AIK tryggt sér fjórða sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Í öðrum leikjum dagsins vann Kristianstad 2-1 sigur gegn Eskilstuna. Elísa Lana Sigurjónsdóttir lagði upp sigurmarkið á 85. mínútu. Elísa Lana, Alexandra Jóhansdóttir og Guðný Árnadóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad, sem með sigrinum tryggði sér fimmta sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Article source: Vísir | Image credit: Vísir
Ásdís Karen Halldórsdóttir átti stóran þátt í 8-2 sigri AIK á Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Ásdís skoraði þrennu og lagði upp tvö mörk í leiknum. AIK lenti tveimur mörkum undir snemma leiks, en Ásdís hóf endurkomu liðsins með fyrsta marki þess. Fyrir lok fyrri hálfleiks hafði AIK snúið stöðunni sér í vil og leiddi 4-2. Í seinni hálfleik bætti Ásdís við öðru marki sínu áður en Ida Björnberg skoraði sjötta mark liðsins. Ásdís lagði síðan upp sjöunda markið og fullkomnaði þrennu sína á 81. mínútu. Með sigrinum hefur AIK tryggt sér fjórða sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. Í öðrum leikjum dagsins vann Kristianstad 2-1 sigur gegn Eskilstuna. Elísa Lana Sigurjónsdóttir lagði upp sigurmarkið á 85. mínútu. Elísa Lana, Alexandra Jóhansdóttir og Guðný Árnadóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad, sem með sigrinum tryggði sér fimmta sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina.
News Desk is the editorial publishing account for Tringlobe Media News, covering breaking news, public affairs, entertainment, community developments and regional stories across Trinidad and Tobago, the Caribbean and internationally.