Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað

Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára íslenskur ríkisborgari, var fyrir um mánuði sakfelldur fyrir þjófnað í Phuket í Taílandi. Hann hlaut þriggja ára skilorðsbundinn fangelsisdóm. Að sögn Jóhanns var refsingin síðar stytt um helming og frestað í tvö ár þar sem um fyrsta brot var að ræða. Hann þarf því ekki að sitja í fangelsi, en hann er enn staddur í landinu þar sem hann hefur ekki fengið vegabréf sitt afhent. Atvikið átti sér stað í júní síðastliðnum í Patong. Samkvæmt taílenska fjölmiðlinum Khaosod tók leigubílstjóri, kona á fertugsaldri, Jóhann upp í fyrir utan sjúkrahús. Konan bar fyrir lögreglu að farþeginn hefði teygt sig í handtösku hennar í framsætinu og neitað að skila henni. Eftir stympingar við bílstjórann og inngrip vegfarenda var töskunni, ásamt síma, peningum og skilríkjum, skilað. Atvikið náðist á öryggismyndavél bílsins og var Jóhann handtekinn í kjölfar þess að lögregla birti myndband af atvikinu á samfélagsmiðlum. Jóhann hefur haldið því fram að um misskilning hafi verið að ræða. Hann segist hafa verið úrvinda eftir flug, sofnað í bílnum og vaknað ráðvilltur, þar sem hann hafi ranglega talið töskuna vera í eigu eiginkonu sinnar. Þrátt fyrir að neita ásetningi játaði Jóhann sekt fyrir dómi. Hann segir að honum hafi verið ráðlagt að gera það til að flýta fyrir málsmeðferð og heimför. Jóhann hefur beðið eftir vegabréfi sínu í nokkurn tíma og segir að kjörræðismaður Íslands í Taílandi hafi tjáð honum að það verði afhent þegar málsmeðferð ljúki, sem feli í sér brottvísun úr landi. Utanríkisráðuneytið hefur staðfest að málið sé hjá borgaraþjónustunni, en veitir ekki frekari upplýsingar um einstök mál.

Article source: Vísir | Image credit: Vísir

News Desk: News Desk is the editorial publishing account for Tringlobe Media News, covering breaking news, public affairs, entertainment, community developments and regional stories across Trinidad and Tobago, the Caribbean and internationally.