Rúnar Páll Sigmundsson, nýráðinn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu, hefur átt í viðræðum við framherjann Emil Atlason um framtíð hans hjá félaginu. Samningur Emils rennur út við lok yfirstandandi tímabils og hefur hann enn ekki skrifað undir nýjan samning. Emil, sem er 33 ára gamall, hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020 og skoraði fimm mörk fyrir liðið í sumar. Hann hefur áður lýst yfir óánægju með ákvörðun stjórnar félagsins um að segja Jökli Elísabetarsyni upp störfum sem þjálfara liðsins fyrr á þessu ári. Rúnar Páll staðfesti í samtali við íþróttadeild Vísis að hann hefði rætt við Emil um möguleikann á því að hann yrði áfram í Garðabæ. „Ég er búinn að tala við Emil varðandi það. Hann þarf bara að taka ákvörðun um það sjálfur hvað hann vill gera. Ég er ekki að neyða menn til að vera hérna. Hann verður að ákveða það og þannig er það bara,“ sagði Rúnar Páll.