Litlu munaði að steinninn lenti á rútu

Tíu tonna grjóthnullungur féll úr hlíðum Holtsnúps undir Eyjafjöllum í gær og fór í gegnum nýuppsettar hrunvarnir við Hringveginn. Engin slys urðu á fólki, en að sögn íbúa á svæðinu munaði mjög litlu að steinninn lenti á rútu sem var á ferð um veginn. Hrunvarnirnar voru settar upp í sumar í kjölfar banaslyss í mars í fyrra, þegar stórt grjót féll úr fjallshlíðinni á bifreið með þeim afleiðingum að erlend kona lést á vettvangi. Vegagerðin greinir frá því í tilkynningu að hrunvarnirnar hafi verið hannaðar til að stöðva steina á bilinu þrjú til fjögur tonn, en þær hafi ekki ráðið við þann tíu tonna hnullung sem féll í gær. Ingveldur Anna Jónsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi á svæðinu, segir íbúa afar áhyggjufulla vegna ástandsins. Hún bendir á að margir sæki vinnu yfir svæðið og að skólabílar séu þar á ferð daglega. Að hennar mati veita varnirnar falskt öryggi og hún kallar eftir frekari úrbótum, svo sem að vegurinn verði færður. „Hann greip vissulega nokkra steina sem féllu úr fjallinu, sem er jákvætt, en þarna fór tíu tonna steinn eins og byssukúla í gegnum garðinn,“ segir Ingveldur. Hún bætir við að ef atvikið hefði átt sér stað í myrkri hefði verið hætta á að ökumenn hefðu ekið beint á grjótið sem lá á veginum.

Article source: Vísir | Image credit: Vísir

News Desk: News Desk is the editorial publishing account for Tringlobe Media News, covering breaking news, public affairs, entertainment, community developments and regional stories across Trinidad and Tobago, the Caribbean and internationally.