Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt, en alls voru 35 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í morgun. Fjögur málanna leiddu til þess að einstaklingar gistu í fangageymslum. Meðal verkefna lögreglu var handtaka manns á bar sem grunaður er um að hafa stolið vinningum úr spilakössum. Samkvæmt dagbók lögreglu framvísaði maðurinn skilríkjum annars manns sem höfðu verið klippt í sundur. Hann var verulega ölvaður og gat ekki gert grein fyrir sér. Lögreglan hafði einnig afskipti af fjölda ökumanna vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna. Einn ökumaður var stöðvaður sem reyndist vera sviptur ökuréttindum. Við leit í bifreið hans fannst mikið magn vímuefna, peningar og farsímar, og er maðurinn grunaður um sölu og dreifingu vímuefna. Auk þess er hann grunaður um akstur gegn rauðu ljósi, vörslu hnífs, brot á lyfjalögum, akstur á ótryggðu ökutæki og brot á reynslulausn. Maðurinn var vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar. Að auki var tilkynnt um eld í frístandandi sánuklefa á stöð 4, sem nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang var sánan brunnin til kaldra kola. Lögregla telur ekki grun um saknæmt athæfi í tengslum við brunann.